Á Mínum síðum geta félagsmenn m.a. sótt rafrænt um styrki í sjóði félagsins, fundið ýmsar upplýsingar um réttindi sín og fylgst með því hvort iðgjöld frá atvinnurekanda skili sér til félagsins.
Nýtt viðmót og útlit á síðunum hefur nú verið innleitt til að bæta upplifun notenda og í kjölfarið er umsóknaferli fyrir styrki með örlítið breyttu sniði.
Fyrst um sinn verður áfram hægt að velja gamla viðmótið á síðunum en í fyllingu tímans verður því lokað.
Við hvetum félagsmenn eindregið til að skoða og nota Mínar síður, og hafa samband við starfsfólk skrifstofunnar ef einhverjar spurningar vakna.
Fyrir þá sem ekki vilja nýta sér rafrænt umsóknaferli fyrir umsóknir eða fyrirspurnir má að sjálfsögðu áfram senda okkur tölvupóst, hringja eða kíkja í heimsókn til okkar á skrifstofu félagsins.
Hér má sjá leiðbeiningar fyrir Mínar síður
