Íbúð á Spáni

Arenales del sol, Alicante á Spáni
________________________________________
Aldan stéttarfélag, Verk Vest., Verkalýðsfélag Snæfellinga og Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis eiga orlofsíbúð í Los Arenales sem er úthverfi Alicante á Spáni.
Raðhúsahverfið Altomar III í Los Arenales er í úthverfi Alicanteborgar og mjög gott útsýni er til Alicante frá ströndinni í Los Arenales sem er samfelld alveg til Alicante. Akstur frá Alicante flugvelli til hverfisins tekur 10 – 15 mínútur, en um 20 mín. akstur er inn í miðborg Alicante frá íbúðinni. Auðvelt er að taka bílaleigubíl frá flugvelli og auðvelt að fylgja leiðbeiningum til áfangastaðar.

Bókanir fara fram hjá Verk Vest og eru félagsmenn því beðnir að snúa sér til skrifstofu Verk Vest með bókanir eða til að fá frekari upplýsingar.
Sími skrifstofunnar er 456 5190 og netfangið er postur@verkvest.is en skrifstofan er opin frá kl. 8:00 – 16:00 alla virka daga.

Smelltu hér til að skoða myndir af íbúðinni og umhverfi hennar

 

Hér má sjá hvaða tímabil eru laus

Hús og búnaður
Íbúðin er nr. 13 og er á jarðhæð í raðhúsahverfinu Altomar III í Los Arenelas. Hefur hún fengið nafnið „Vinaminni“.
Í íbúðinni eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa, sér eldhús og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar. Loftkæling er í húsinu.
Íbúðin er í lokuðum kjarna sem ekki er hægt að komast inn í nema hafa lykil eða aðgangsheimilid. Íbúðin er vel búin öllum helstu þægindum og mjög gott aðgengi er að henni. Gistipláss er fyrir 6 fullorðna í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu, einnig fylgir ferðabarnarúm. Raðhúsakjarninn er mjög snyrtilegur en fyrir miðju kjarnans er sameiginleg sundlaug með barnalaug sem aðeins íbúarnir hafa aðgang að. Við hliðina á sundlauginni er stigahús niður í bílastæðakjallarann en íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílageymslunni.

Dvalargestir losa sig við sorp í gám við byggðina. Í húsinu er sjónvarp, örbylgjuofn, þvottavél og svefnsófi í stofu. Samanbrotið barnarúm er í tösku í svefnherbergi og barnastóll í stofu. Garðborð og stólar ásamt tveim sólbekkjum fylgja og verða gestir að setja garðhúsgögn inn í lok dvalar. Ekki er gæsla við sundlaugarsvæði og bera gestir sjálfir ábyrgð á umgengni barna við sundlaugar.

Um hverfið og staðsetninguna
Los Arenales er strandbær sem býður upp á alla nauðsynlega þjónustu með verslunum og veitingastöðum. Mjög stutt er frá íbúðarkjarnanum niður á ströndina sem er í 5 – 10 mínútu göngufæri. Strandlengja Los Arenales er nánast samfelld sandfjara í átt til Alicante í norðri og til Santa Pola í suðri. Þar er mjög fjölbreytt þjónusta með úrvali veitingastaða, stórmarkaða og verslana. Um 10 mínútna akstur er til Sant Pola og um 5 mínútna akstur til Gran Alicant sem er þjónustukjarni sem ekið er í gegnum frá flugvellinum á leið til Altomar III. Um 40 mínútna akstur er til Torriveija frá Los Arenales.

Hérna má lesa umgengnisreglur fyrir íbúðina.