Leiðbeiningar fyrir Mínar síður

Á Mínum síðum á heimasíðu Öldunnar stéttarfélags geta félagsmenn nú fylgst með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum. Þeir félagsmenn sem starfa eftir kjarasamningi sveitarfélaga getur líka fylgst með inneign sinni í Félagsmannasjóði sem greiddur er út 1.febrúar ár hvert.

Athugið að allar umsóknir um styrki er nú hægt að framkvæma rafrænt í gegnum Mínar síður.

Við innskráningu velur félagsmaður hvort hann notar rafræn skilríki eða auðkennisapp frá Auðkenni en eftir innskráningu birtist svokallað persónublað félagsmannsins.

Hér má sjá útskýringu á persónublaði félagsmanns  á Mínum síðum.

Hér má sjá dæmi um umsókn úr fræðslusjóði á Mínum síðum

Hér má sjá  dæmi um umsókn um styrk úr sjúkrasjóði  á Mínum síðum

Hér má sjá hvernig  umsókn vegna hótelgistingar úr orlofssjóði lítur út á Mínum síðum

Hér má sjá hvernig  umsókn um sjúkradagpeninga  lítur út á Mínum síðum