Aldan

ASÍ: Ólík verðþróun á innlendum og innfluttum vörum

By 9. nóvember, 2026No Comments

Í september boðuðu aðilar á smásölumarkaði verðlækkanir og verðfrystingar sem framlag til aukins verðstöðugleika. Verðlagseftirlit ASÍ hefur mælt aukna tíðni verðlækkana en um þriðjungur vara í Bónus lækkaði í verði á tímabilinu ágúst til nóvember. Í öðrum verslunum var hlutfallið lægra og meira um mældar verðhækkanir heldur en verðlækkanir.

Þrátt fyrir boðaðar verðlækkanir hækkaði dagvöruvísitala ASÍ um 0,33% á tímabilinu ágúst til nóvember. Hækkun vísitölunnar má fyrst og fremst rekja til verðhækkana á kjöti og mjólkurvörum en á móti hafa verðlækkanir að mestu verið bundnar við innfluttar vörur.

Matarverð hækkað þrátt fyrir fjölda verðlækkana

Dagvöruvísitala ASÍ, sem byggir á pöruðum samanburði, hefur hækkað um 0,33% frá ágúst. Því hefur nokkuð hægt á verðhækkunum frá upphafi árs en vísitalan hækkaði að jafnaði um 0,66% á mánuði á fyrsta ársfjórðungi. Á tímabilinu hækkaði dagvöruvísitalan mest í Bónus, um 0,49% samanborið við 0,4% í Krónunni. Verðlag í Prís og Nettó stóð að mestu í stað, eða 0,06% hækkun í Prís og 0,02% í Nettó.

Á tímabilinu má því bæði sjá hækkun á matvöruverði og aukið hlutfall verðlækkana. Hækkun á kjötverði, einkum nautakjöti, vegur þungt og skýrir meira en helming af hækkun vísitölunnar. Aðrir liðir á borð við mjólkurvörur, fisk og grænmeti hafa einnig hækkað.

Verðlækkanir umfangsmestar í Bónus

Á tímabilinu ágúst–nóvember 2026 má sjá að Bónus var með hæsta hlutfall vara sem lækkuðu í verði, 31,4%, og jafnframt hæsta hlutfall vara sem hækkuðu 22,6%. Verð á um 46% vara var óbreytt á tímabilinu. Á meðan stóð verð í stað á flestum vörum hjá Prís um 70,5% en hlutfall lækkana þar var 10,9% og hækkana 18,7%.

Krónan lækkaði verð á 16,1% vara en óbreytt verð var á um 65,4% vara en verð hækkaði á 18,6% vara. Nettó lækkaði verð á 13,8% vara en hækkaði verð á 20,1% vara, óbreytt verð var á 66,1% vara.

Aðferðafræði

Umfjöllunin byggir á verðathugun verðlagseftirlits ASÍ á tímabilinu ágúst til nóvember 2026. Verðlagsbreytingar eru reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal.