Minniborgir

Aldan stéttarfélag á eitt orlofshús í Minniborgum í Grímsnesi.

Húsið er 100 fermetrar að stærð og í því eru 2 svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi og hitt með 2 stökum rúmum. Auk þess er stórt svefnloft með gistiaðstöðu fyrir allt að 6 manns í rúmum. 2 sjónvörp, uppþvottavél og örbylgjuofn eru til staðar, sem og þvottavél og þurrkari. Nettenging er í húsinu. Sólpallur eru við húsið með heitum potti, gasgrilli og góðum útihúsgögnum.

Á svæðinu er veitingastaður sem opinn er allt árið um kring. Í næsta nágrenni má finna sundlaug, golfvöll, hestaleigu, litla matvöruverslun og bensínustöð.

Grímsnes er staðsett við Gullna hringinn og því stutt í alla helstu ferðamannastaði og náttúruperlur á svæðinu. Vegalengd frá Reykjavík er 75 km.

Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.