Skip to main content

Vegna aðalfundar Öldunnar stéttarfélags hefur trúnaðarráð samþykkt tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs til næstu tveggja ára. Þetta árið er kosið um sæti formanns, ritara og tveggja meðstjórnenda.

Vegna aðalfundar Öldunnar stéttarfélags hefur trúnaðarráð samþykkt tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs til næstu tveggja ára. Þetta árið er kosið um sæti formanns, ritara og tveggja meðstjórnenda. 
Kjörstjórn auglýsir nú hverjir skipa A –lista til stjórnarkjörs en tillagan er eftirfarandi:

Þórarinn Guðni Sverrisson, formaður.
Arna Björnsdóttir, ritari.
Haraldur Hjálmarsson, meðstjórnandi.
Anna Birgisdóttir, meðstjórnandi.

Frestur til að leggja fram aðra lista rennur út kl. 12:00 þann 31. mars  2015.  Er hvert það framboð gilt sem fram kemur innan þess tíma sem er fullmannað og hefur skriflegt samþykki þeirra sem eru í framboði og meðmæli a.m.k. 30 fullgildra félaga.

Komi hins vegar ekki fram fleiri listar teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir.
Kosningu skal lýst á aðalfundi og tekur þá nýkjörin stjórn við félaginu.

Fullgildir framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn á skrifstofu stéttarfélaganna í síðasta lagi kl. 12:00 þann 31. mars n.k.

Allar upplýsingar um framlagningu lista eru veittar á skrifstofu stéttarfélaganna, Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki, eða í síma: 453 5433.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is