Skip to main content
Aldan

Slæm umgengni !

By október 19, 2021október 20th, 2021No Comments
Að gefnu tilefni þurfum við því miður að minna félagsmenn á að ganga vel frá í íbúðum og orlofshúsum eftir notkun. Því miður er staðan sú að kvörtunum vegna umgengi og lélegra þrifa hefur farið fjölgandi að undanförnu.

Félagar! Höfum í huga að þetta er sameign okkar allra og því er nauðsynlegt að við hugsum öll vel um eignirnar okkar og skiljum við hús og íbúðir eins og við viljum sjálf koma að þeim.
Verði vanhöld á þrifum, að mati umsjónarmanns á viðkomandi svæði, má búast við að leigutaki þurfi að borga þrifagjald.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is