Allir aðilar sem hafa áhrif á verðmyndun þurfa að skuldbinda sig til að hækka gjaldskrár sínar ekki um meira en 2,5%. Þetta á m.a. við um ríki, sveitarfélög og verslanir, ef takast á að ná niður verðbólgu og vöxtum og skapa þannig skilyrði fyrir því að kjarasamningar haldi.
Vegna þessa skoraði Starfsgreinasamband Íslands (SGS) á sveitarfélög landsins að skuldbinda sig til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og sjá til þess að gjaldskrár þeirra og fyrirtækja í þeirra eigu hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Nú þegar hafa mjög mörg sveitarfélög svarað kallinu og er Skagafjörður þar með talinn og hefur lýst sig reiðubúið til að halda öllum gjaldskrárhækkunum innan 2,5% viðmiðsins.
Á vef SGS má sjá kort yfir þau sveitarfélög sem nú hafa staðfest samstarfsvilja og hvetja jafnframt önnur sveitarfélög til að gera slíkt hið sama.
