Skip to main content
Aldan

SGS undirritar nýjan kjarasamning við LS og SSÚ

By mars 2, 2023No Comments

Undirritaður hefur verið nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk sem vinnur við uppstokkun eða beitningu í landi og netavinnu, en viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir frá því í lok janúar.
Samningurinn er á milli Starfsgreinasambands Íslands annars vegar og Landssambands smábátaeigenda og Samtaka smærri útgerða hins vegar.

Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. nóvember 2022 og til 31. janúar 2024, sbr. kjarasamning SGS og SA sem undirritaður var 3. desember sl. Samkvæmt nýjum samningi hækkar kauptrygging frá 1. nóvember 2022 um 44.959 kr. og verður 448.224 kr., en upphæðin miðast við 15. launaflokk og 5 ára starfsaldursþrep í launatöflu SGS og SA. Samninginn í heild sinni má nálgast hér.

Meðfylgjandi myndir eru frá fundi samningsaðila sem haldinn var á Akranesi 2. febrúar sl., en þá kynntu aðilar sér m.a. aðstæður hjá fyrirtækinu Eskey.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is