Skip to main content

Afsláttarkort AN hefur nú samið við nokkur fyrirtæki í Skagafirði og von er á að fleiri bætist í hópinn. Samstarfsaðilar kortsins eru nú að nálgast fimmtíu talsins og stöðugt er unnið að því að fá fleiri fyrirtæki í samstarf.

Þau fyrirtæki sem nú var samið við eru :

KS bílaverkstæði – 10 % afsláttur af allri vöru og þjónustu ( gildir ekki af tilboðum)

Hótel Tindastóll   – 10 % afsláttur af gistingu ( gildir ekki af tilboðum)

Hótel Mikligarður  – 10 % afsláttur af gistingu ( gildir ekki af tilboðum)

Hard Wok Café  – 15 % afsláttur af allri vöru ( gildir ekki af tilboðum)

Glaumbæjarsafn – aðgangseyrir 700 krónur í stað 1.000 króna.

Allar upplýsingar um kortið og önnur fyrirtæki sem veita afslátt má finna á heimasíðu AN kortsins.

Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þá kjarabót sem kortið er og hafi þeir ekki fengið kortið nú þegar geta þeir nálgast það á skrifstofu stéttarfélaganna þeim að kostnaðarlausu.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is