Skip to main content
Aldan

Pistill forseta: Örugg í vinnunni – örugg heim

By nóvember 19, 2021No Comments

Í dag heldur Vinnueftirlitið upp á 40 ára afmæli sitt og óska ég starfsfólki stofnunarinnar og öllu vinnandi fólki til hamingju með daginn. Vinnueftirlitið var stofnað af mikilli framsýni og í kjölfar kjarasamninga sem lögðu áherslu á öryggi vinnunnar í bland við aukinn kaupmátt. Örfáum árum áður hafði verið sett reglugerð um húsnæði vinnustaða þar sem í fyrsta sinn var fjallað með skipulögðum hætti um hvernig vinnurýmum ætti að vera háttað, þar á meðal um kaffi- og matstofur. Það var nefnilega hvorki sjálfsagt að fólk gæti tekið hvíldarhlé í mannsæmandi umhverfi né að það nyti eðlilegs öryggis við vinnu sína.

Á upphafsárum Vinnueftirlitsins voru mikil átök um starfssvið þess. Hvaða verkefni það ætti að fást við og hvenær það væri að seilast inn á verksvið annarra stofnana og félagasamtaka. Síðan hefur eftirlitið fest sig í sessi og fengið sífellt viðameiri hlutverk, eftir því sem þekking á vinnuaðstæðum eykst, vinnumarkaðurinn verður fjölbreyttari og auknar kröfur eru gerðar til öryggis og vellíðunar.

Öryggi í dag felst ekki bara í fallvörnum og stálskóm, þótt slík öryggisatriði megi aldrei vanmeta heldur ekki síður í sálfélagslegu öryggi. Að þér líði vel í vinnunni og verðir ekki fyrir áreitni, einelti eða ofbeldi. Verkalýðshreyfingin hefur lagt mikla áherslu á þetta og auðvitað á hún að ganga undan með góðu fordæmi á sínum eigin vinnustöðum, innan stéttarfélaga og heildarsamtaka.

Það er mitt mat að verkefni vinnueftirlitsins þurfa að njóta aukins stuðnings pólitískt og í gegnum fjárveitingar. Öryggi í heimi vinnunnar er stórpólitískt lýðheilsumál enda verjum við flest miklum hluta ævinnar við vinnu. Og það er kynjamál líka. Ekki bara af því að konur eru síður öruggar fyrir áreitni á vinnustöðum heldur er vinnumarkaðurinn afar kynjaður og örorkutölur sýna að stórar starfsstéttir kvenna eru þess eðlis að þær endast ekki heila starfsævi vegna álags. Umönnun og líkamleg og andleg þjónusta er þar helsti áhrifavaldurinn. Við höfum náð að saxa á áður hræðilegar tölur um slys og dauðsföll við vinnu, sem ekki síst voru á sjó og í byggingariðnaði. Á meðan við stöndum vörð um þann árangur og gerum enn betur, þá er löngu tímabært að takast líka á við sálfélagslegu þættina og andlega álagið.

Góða helgi,
Drífa

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is