Aldan

Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2026

By 4. júní, 2026júní 12th, 2026No Comments

Minnum félagsmenn á rétt þeirra á að fá greidda orlofsuppbót (persónuuppbót), en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Þá á að gera upp áunna orlofsuppbót samhliða starfslokum, verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar. Í reiknivélum SGS hér að neðan geta félagsmenn reiknað út sína orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.

Almennur vinnumarkaður:
Orlofsuppbót er  62.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Reiknivél.

Ríki:
Orlofsuppbót er 62.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Reiknivél.

Sveitarfélög:
Persónuuppbót er 62.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí. Reiknivél.