Skip to main content
Aldan

Orlofsuppbót

By maí 31, 2023No Comments

Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2023

Minnum félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbót er 56.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.

Ríki
Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar. Á árinu 2022 var orlofsuppbótin 53.000 kr. miðað við fullt starf.

Sveitarfélög
Persónuuppbót er 55.700 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí. Upphaflega var uppbótin 54.350 kr. en samkomulag náðist um að hækka uppbótina á fundi samráðsnefndar samningsaðila 25. apríl 2023.

Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is