Skip to main content
Aldan

Nýr kjarasamningur undirritaður

By mars 8, 2024No Comments

Undirritaður hefur verið nýr kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Um er að ræða langtímasamning en gildistími samningsins er frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. Nú tekur við kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn meðal félagsmanna en niðurstaða afgreiðslu samningsins á að liggja fyrir ekki síðar en miðvikudaginn 20. mars næstkomandi. 

Meginmarkmið samnings 

  • Lækkun verðbólgu og vaxta með samstilltu átaki verkalýðshreyfingar, ríkis, atvinnurekenda, sveitarfélaga og annarra​.
  • Endurreisn tilfærslukerfa heimila vinnandi fólks​.
  • Kaupmáttaraukning verði á samningstímanum.

Launahækkanir
Hækkanir eru á formi blandaðrar leiðar krónutölu og prósentu. Launahækkanir koma til áhrifa á fjórum dagsetningum með árs millibili á samningstíma.

1. febrúar 202: 3,25% eða að lágmarki 23.750 kr.
1. janúar 2025: 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.
1. janúar 2026: 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.
1. janúar 2027: 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.

Krónutöluhækkun á samningstíma er 95.000 kr. sem jafngildir 24% hækkunar lægstu launa.
Aðrir kjaratengdir liðir taka almennum hækkunum í kjarasamningi.

Orlofsuppbót
2024: 58.000 kr.
2025: 60.000 kr.
2026: 62.000 kr.
2027: 64.000 kr.

Desemberuppbót
2024: 106.000 kr.
2025: 110.000 kr.
2026: 114.000 kr.
2027: 118.000 kr.

Forsenduákvæði
Samningurinn stendur og fellur með því að markmið um lækkun verðbólgu náist, sem aftur eru forsenda vaxtalækkunar. Til að styrkja forsendur og markmið kjarasamninganna mun sérstök launa- og forsendunefnd taka þegar til starfa. Verkefni nefndarinnar er að fylgjast með framvindu þeirra þátta í efnahagslífinu sem áhrif geta haft á markmið samningsins, leggja formlegt mat á forsendur kjarasamningsins og eftir atvikum semja um viðbrögð við forsendubresti sem treysta forsendur samningsins og stuðla að því að hann haldi gildi sínu.

Einnig eru í samningnum tvö forsenduákvæði sem koma snúa að annars vegar að vörn gegn launaskriði og hins vegar tryggingu launafólks á hlutdeild í framleiðniaukningu.

Framlag stjórnvalda
Framlag stjórnvalda er mikilvægur hluti af ávinningi kjarasamningsins. Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerðaáætlun sem felur í sér fjárframlög til ýmissa mála sem gagnast vinnandi fólki. Er þar um að ræða aukningu ríkisútgjalda um 20 milljarða á ári. Helstu atriðin í framlagi stjórnvalda eru:

  • Húsnæðisstuðningur
    • Sérstakur vaxtastuðningur vegna hás vaxtakostnaðar
    • Húsnæðisbætur – Grunnfjárhæð hækkar. Sérstök viðbót miðast að því að styðja betur við fjölmennari fjölskyldur
  • Barnafjölskyldur
    • Barnabætur, markmiðið er að fjölga viðtakendum barnabóta og að skerðingarmörkin verði hækkuð í átt að miðtekjum
    • Fæðingarorlof – Hámarksupphæð hækkar úr 600.000 kr. í 900.000 kr. á tímabilinu
    • Gjaldfrjálsar skólamáltíðir
  • Önnur atriði
    • Gjaldskrár hins opinbera – Ríkið skuldbindur sig til að hækka ekki umfram 2,5% á árinu 2025. Tilmæli til sveitarfélaga um að endurskoða áður útgefnar hækkanir og halda þeim innan 3,5% vegna barnafjölskyldna.

 

Eftirfarandi félög eiga aðild að samningnum: 
AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélagið Samstaða, Stéttarfélag Vesturlands, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verkalýðsfélagið Hlíf, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Verkalýðsfélag Þórshafnar.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is