Afgreiðslur fyrir desembermánuð munu fara fram fyrir jól en ekki í lok mánaðar eins og venja er.
Það er því mjög áríðandi að öll gögn og umsóknir hafi borist skrifstofunni í síðasta lagi föstudaginn 14. desember.

Vegna umsókna í sjúkra-  og fræðslusjóð Öldunnar stéttarfélags

Afgreiðslur fyrir desembermánuð munu fara fram fyrir jól  en ekki í lok mánaðar eins og venja er.
Það er því mjög áríðandi að öll gögn og umsóknir berist skrifstofunni í síðasta lagi föstudaginn 14. desember. Að öðrum kosti dregst afgreiðsla umsóknar fram i lok janúar 2013.

Þeim félagsmönnum sem eru í námi er bent á að drífa í að sækja um styrk áður en nýtt tímabil hefst á nýju ári.