Skip to main content

Formannafundur Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega þeirri herferð sem ríkisstjórnin er í gegn atvinnulausum og öðru tekjulágu fólki og birtist í nýju fjárlagafrumvarpi.

Formannafundur Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega þeirri herferð sem ríkisstjórnin
er í gegn atvinnulausum og öðru tekjulágu fólki og birtist í nýju fjárlagafrumvarpi.
Skerðing á bótatíma atvinnulausra er afturhvarf til fortíðar. Með hækkun á matarskatti er verið að velta álögum frá tekjuhæsta fólkinu yfir á lágtekjufólk.
Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem nú funda á Ísafirði munu berjast hart gegn öllum þeim áformum sem birtast í frumvarpinu og verða til þess að rýra enn afkomu almenns launafólks og sérstaklega þeirra tekjulægstu.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is