Skip to main content

Við hvetjum félagsmenn okkar til að halda áfram að fylgjast með vöruverði í verslunum og senda inn ábendingar um verðbreytingar inn á heimasíðuna vertuaverdi.is

Við hvetjum félagsmenn okkar til að halda áfram að fylgjast með vöruverði í verslunum og senda inn ábendingar um verðbreytingar inn á heimasíðuna vertuaverdi.is

Hægt er að láta vita af óeðlilegum verðhækkunum með því að senda inn farsímamyndir eða skilaboð á vefinn og sömuleiðis er hægt að láta vita af því sem vel er gert og vekja athygli á verðlækkunum.
 
Markmiðið með þessu átaki sem aðildarfélög ASÍ standa fyrir er tvíþætt: Annars vegar að veita verslunar- og þjónustuaðilum aðhald, hvetja þá til að sýna ábyrgð og stöðva verðhækkanir.
Hins vegar að brýna fyrir almenningi að vera á verði og fylgjast vel með þróun verðlags.

Okkur finnst öllum komið nóg af verðhækkunum.
Við þurfum að standa saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar !

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is