Aldan

ASÍ: Atvinnuleysi áfram meira en fyrir ári

By 24. september, 2026No Comments

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mældist 6,8% í ágúst og hækkaði um 0,2 prósentustig frá síðasta mánuði samkvæmt nýjum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Á sama tíma í fyrra mældist það 5,8% og hefur atvinnuleysið því aukist um prósentustig milli ára.

Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun var 3,9% í ágúst og lækkaði um 0,1 prósentustig frá júlí. Það var þó hálfu prósentustigi meira en í ágúst í fyrra, þegar það mældist 3,4%. Eykst atvinnuleysi því milli ára hvort sem litið er til mælinga Hagstofu eða atvinnuleysis hjá Vinnumálastofnun.

Skilgreiningar og aðferðafræði mælinga Hagstofu og Vinnumálastofnunar á atvinnuleysi eru ólíkar. Vinnumálastofnun heldur utan um skráð atvinnuleysi en Hagstofan byggir á úrtakskönnun þar sem staða fólks á vinnumarkaði er metin samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum. Þar geta meðal annars talist atvinnulausir í atvinnuleit sem ekki eru skráðir hjá Vinnumálastofnun eða eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Mælingarnar meta því ólíkt atvinnuleysi og þróun þess.

Í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar, Íslenskur vinnumarkaður: Innlendur vinnumarkaður á fyrri hluta árs 2026, birtist sama mynd. Skráð atvinnuleysi á fyrstu sjö mánuðum ársins var að meðaltali 4,5%, samanborið við 3,9% á sama tímabili árið 2025.

Nærri helmingur hefur verið atvinnulaus í meira en hálft ár
Í lok ágúst höfðu 1.734 einstaklingar verið án atvinnu í meira en tólf mánuði, samanborið við 1.511 á sama tíma í fyrra. Auk þeirra höfðu 2.432 verið atvinnulausir í sex til tólf mánuði í ágúst.

Samanlagt höfðu tæplega 48% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í lok ágúst verið atvinnulaus í sex mánuði eða lengur. Hlutfallið hækkaði frá júlí og tæplega fimmtungur allra á atvinnuleysisskrá í ágúst hafði verið atvinnulaus í meira en ár.

Í skýrslu Vinnumálastofnunar kemur fram að langtímaatvinnuleysi, þ.e. fjöldi þeirra sem höfðu verið án atvinnu í meira en 12 mánuði sem hlutfall af vinnuafli, hafi aukist síðustu ár og var rúmlega 0,9% fyrstu mánuði þessa árs. Hlutfallið tók að lækka í maí og mældist 0,7% í júlí, svipað og á sama tíma fyrir ári.

Engu að síður er stór hluti atvinnuleitenda búinn að vera án atvinnu í lengri tíma og mikilvægt er að fylgjast áfram vel með þróuninni og beita þeim úrræðum sem í boði eru.

Aukið atvinnuleysi milli ára einskorðast ekki við einn hóp
Atvinnuleysi er áfram mun meira meðal erlendra ríkisborgara en þeirra sem hafa íslenskt ríkisfang. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hafi verið 7,7% í ágúst, en 2,5% meðal íslenskra ríkisborgara. Atvinnuleysi erlendra ríkisborgara lækkaði úr 7,9% í júlí en það stóð hins vegar í stað meðal íslenskra ríkisborgara.

Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2026 var atvinnuleysi að meðaltali 9,3% meðal erlendra ríkisborgara en 2,7% meðal íslenskra ríkisborgara.

Atvinnuleysi var meira hjá báðum hópum en fyrir ári. Í ágúst 2025 mældist það 7,4% meðal erlendra ríkisborgara og 2,0% meðal íslenskra ríkisborgara. Þótt atvinnuleysi sé því áfram mun meira meðal erlendra ríkisborgara hefur aukning atvinnuleysis milli ára ekki einskorðast við þann hóp.

Ungt fólk skemur á atvinnuleysisskrá
Skýrsla Vinnumálastofnunar sýnir að ungt fólk er að jafnaði skemur á atvinnuleysisskrá en þau eldri. Þegar reynsla síðustu þriggja ára er skoðuð höfðu 70% atvinnuleitenda á aldrinum 18–29 ára verið á atvinnuleysisbótum í minna en 6 mánuði. Hlutfallið var 62% meðal 30–54 ára og 55% meðal þeirra sem voru 55 ára og eldri.

Þótt ungt fólk sé að jafnaði skemur á atvinnuleysisskrá er atvinnuleysi þess sveiflukennt og ástæða til að fylgjast vel með þróuninni. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar mældist árstíðaleiðrétt atvinnuleysi meðal 16–24 ára 14,2% í ágúst. Það mældist 6,7% í júlí síðastliðnum og 13,2% í ágúst í fyrra. Miklar sveiflur eru í mánaðartölunum og túlka ber breytingar milli einstakra mánaða af varfærni.

Þegar ársfjórðungstölur Hagstofunnar eru skoðaðar má þó sjá að atvinnuleysi meðal 16–24 ára mældist 17,9% á fyrsta ársfjórðungi og 17,3% á öðrum ársfjórðungi og jókst mikið frá fyrra ári. Benda niðurstöðurnar til þess að stór hópur ungs fólks sé í atvinnuleit, þótt hann skili sér ekki allur inn í atvinnuleysistryggingakerfið.

Veikari staða en fyrir ári
Vinnumálastofnun telur að vinnumarkaðurinn hafi kólnað og gerir ráð fyrir að atvinnuleysi aukist næstu tólf mánuði og geti orðið 5,4–5,5% á fyrstu mánuðum ársins 2027.

Þróunin kallar á áframhaldandi árvekni, sérstaklega gagnvart langtímaatvinnulausum, ungu fólki í atvinnuleit og erlendum ríkisborgurum. Mikilvægt er að tryggja öflug vinnumarkaðsúrræði sem taka mið af ólíkri stöðu og þörfum þeirra hópa sem eru á atvinnuleysisskrá.