Skip to main content
Aldan

A listi til stjórnarkjörs

By janúar 29, 2024No Comments

Vegna aðalfundar Öldunnar stéttarfélags hefur trúnaðarráð samþykkt tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs til næstu tveggja ára. Þetta árið er kosið um sæti varaformanns, vararitara og tveggja meðstjórnenda.

Í samræmi við lög félagsins auglýsir kjörstjórn hér með hverjir skipa A –lista til stjórnarkjörs.

 

Tillagan er eftirfarandi:

Guðbjörg Særún Björnsdóttir, varaformaður.
Linda Gunnarsdóttir, vararitari.
Guðrún Ólafsdóttir, meðstjórnandi.
Guðmunda Steina Jósefsdóttir, meðstjórnandi.

 

Frestur til að leggja fram aðra lista rennur út kl. 12.00 þann 13. febrúar 2024. Er hvert það framboð gilt sem fram kemur innan þess tíma, er fullmannað og hefur skriflegt samþykki þeirra sem eru í framboði og meðmæli a.m.k. 30 fullgildra félaga.

Komi fram fleiri en einn listi skal kjörstjórn láta kjósa um þá í allsherjaratkvæðagreiðslu í fyrsta lagi 1. apríl og í síðasta lagi 10. apríl.

Komi hins vegar ekki fram fleiri listar teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir.

Kosningu skal lýst á aðalfundi og tekur þá nýkjörin stjórn við félaginu.

Fullgildir framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn á skrifstofu stéttarfélaganna í síðasta lagi kl. 12:00 þann 13. febrúar n.k.

Allar upplýsingar um framlagningu lista eru veittar á skrifstofu stéttarfélaganna, að Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki, eða í síma: 453 5433.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is