Skip to main content
Aldan

A listi til stjórnarkjörs

By janúar 13, 2023No Comments

Vegna aðalfundar Öldunnar stéttarfélags hefur trúnaðarráð samþykkt tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs til næstu tveggja ára. Þetta árið er kosið um sæti formanns, ritara og tveggja meðstjórnenda.
Í samræmi við lög félagsins auglýsir kjörstjórn hér með hverjir skipa A –lista til stjórnarkjörs:

Þórarinn Guðni Sverrisson, formaður.
Arna Björnsdóttir, ritari.
Anna Birgisdóttir,  meðstjórnandi.
Ingólfur Jón Geirsson, meðstjórnandi.

Frestur til að leggja fram aðra lista rennur út kl. 12.00 þann 30. janúar 2023. Er hvert það framboð gilt sem fram kemur innan þess tíma, er fullmannað og hefur skriflegt samþykki þeirra sem eru í framboði og meðmæli a.m.k. 30 fullgildra félaga.

Komi fram fleiri en einn listi skal kjörstjórn láta kjósa um þá í allsherjaratkvæðagreiðslu í fyrsta lagi 1. apríl og í síðasta lagi 10. apríl.

Komi hins vegar ekki fram fleiri listar teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir.

Kosningu skal lýst á aðalfundi og tekur þá nýkjörin stjórn við félaginu.

Fullgildir framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn á skrifstofu stéttarfélaganna í síðasta lagi kl. 12:00 þann 30.janúar n.k.

Allar upplýsingar um framlagningu lista eru veittar á skrifstofu stéttarfélaganna, að Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki, eða í síma: 453 5433.

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is