Starfsgreinasamband Íslands og Efling stéttarfélag hafa gengið frá kjarasamningi til næstu fjögurra ára við NPA-miðstöðina. Samningurinn tekur til vinnu félagsmanna aðildarfélaga SGS í störfum sem aðstoðarfólk fatlaðs fólks og gildir afturvirkt frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028. Samningsforsendur eru þær sömu og í aðalkjarasamningi SGS við SA
Samninginn í heild sinni, þar á meðal sérstakan samning um heimil frávik frá vakta- og hvíldartíma, má nálgast hér.