Skip to main content
Aldan

Kosið um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin

By júlí 5, 2024júlí 8th, 2024No Comments

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga hófst í dag og stendur til 15. júlí næstkomandi. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar sama dag. Hægt er að greiða atkvæði í gegnum upplýsingasíðu SGS um samninginn (undir „Atkvæðagreiðsla“) eða á heimasíðu Öldunnar, HÉR.

Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu félagsins og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 mánudaginn 15. júlí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vandlega  og nýta sinn atkvæðisrétt.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og innihald samningsins má nálgast hér.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is