Miðvikudaginn 14.febrúar verður haldinn annar kynningarfundur um nýundirritaðan kjarasamning sjómanna.
Fundurinn verður haldinn kl. 11:00 í gegnum TEAMS fjarfundarbúnað á skrifstofu Öldunnar stéttarfélags.
Fulltrúar SSÍ munu kynna samninginn.
Sjómenn eru eindregið hvattir til að mæta og kynna sér efni samningsins.
Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á fundinn geta fengið hlekk sendan á netfang sitt.
Vinsamlega óskið eftir því með því að senda tölvupóst á netfangið: toti@stettarfelag.is