Minnum á aðalfundi deilda Öldunnar sem haldnir verða í dag.
Aðalfundur Deildar starfsmanna ríkis og sveitarfélaga verður haldinn kl. 16:30 í Borgarmýri 1 og
aðalfundur Matvæladeildar verður haldinn kl. 17:00 í Borgarmýri 1
Félagsmenn Öldunnar stéttarfélags sem starfa annars vegar hjá ríki og sveitarfélagi, og hins vegar í matvælaframleiðslu, eru hvattir til að mæta á fundina.