Skip to main content

Nú er Útilegukortið komið í hús en félagsmönnum Öldunnar býðst að kaupa kortið á mikið lækkuðu verði. Fullt verð er 15.900 krónur en félagsmenn greiða einungis 9.000 krónur fyrir kortið.

Nú er Útilegukortið komið í hús en félagsmönnum Öldunnar býðst að kaupa kortið á mikið lækkuðu verði. Fullt verð er 15.900 krónur  en félagsmenn greiða einungis 9.000 krónur fyrir kortið.

Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Kortið veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti.  Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.
 

Heimasíðu kortsins má skoða hér. 
 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is