Skip to main content

33. þingi Alþýðusambands Norðurlands lauk nú um helgina, en það var haldið á Illugastöðum í Fnjóskadal sl. föstudag og laugardag. Aldan stéttarfélag sendi sex fulltrúa en tæplega 100 manns sátu þingið.

33. þingi Alþýðusambands Norðurlands lauk nú um helgina, en það var haldið á Illugastöðum í Fnjóskadal sl. föstudag og laugardag.  Aldan stéttarfélag sendi sex fulltrúa en tæplega 100 manns sátu þingið.

Meðal þingfulltrúa voru Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands,  Jóhann R. Sigurðsson,
varaformaður Samiðnar, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna og Konráð Alfreðsson, varaformaður Sjómannasambands Íslands, svo ljóst er að stéttarfélögin á Norðurlandi eiga öfluga málsvara í hinum ýmsum landssamböndum.
Fluttu þau stutt erindi um stöðu hvers sambands fyrir sig.  Staða Sjómannasambandsins er þó eilítið önnur en hinna, þar sem það hefur verið samningslaust síðan í lok árs 2010. Hin samböndin voru sammála um stutta samninga og ítrekuðu mikilvægi þess að ná samstöðu, en þá fyrst sýnum við styrk okkar sem mun koma sér vel í komandi kjaraviðræðum.
Heiðursgestur þingsins var Grétar Þorsteinsson, fyrrum forseti ASÍ.

Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS hélt bráðskemmtilegt erindi í máli og myndum um laun og önnur lífsgæði. Ingiberg Guðmundsson frá SSNV fór yfir stöðu atvinnumála á Norðvesturlandi og dró upp áhugaverða punkta. Þorsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri STARFs, fór yfir tilraunarverkefnið STARF sem er tímabundið verkefni nokkurra stéttarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu, Austurlandi og á Suðurnesjum. Þau taka við hlutverki vinnumiðlunar og vinnumarkaðsúrræða af Vinnumálastofnun fyrir félagsmenn þeirra sem eru atvinnuleitendur.  Með þessu eru tengslin við stéttarfélagið ávallt til staðar og boðið upp á persónulega ráðgjöf og þjónustu til að ná sameiginlegu markmiði – að félagsmaðurinn fái aftur vinnu á ný.

Einnig var kynning á afsláttarkorti Alþýðusambands Norðurlands og nýju heimasíðunni. AN kortið var tekið í notkun í desember 2012 og veitir félagsmönnum afslátt hjá fjölmörgum
fyrirtækjum á félagssvæði AN. Félagsmenn Öldunnar stéttarfélags geta nálgast kortið á skrifstofu stéttarfélaganna, hafi þeir ekki gert það nú þegar og nánari upplýsingar um kortið og afslætti má finna á heimasíðu Öldunnar.

Að lokum var ný stjórn AN kosin. Hjördís Gunnarsdóttir, varaformaður Öldunnar stéttarfélags, lét af störfum sem formaður AN og við keflinu tók Eiður Stefánsson, frá FVSA.
Aðrar í stjórn voru kosnar Aðalbjörg Valdimarsdóttir frá stéttarfélaginu Samstöðu og Agnes Einarsdóttir frá Framsýn. Varastjórn skipa Hjördís Gunnarsdóttir frá Öldunni, Huld Aðalbjarnardóttir frá Framsýn og Jóhann R. Sigurðsson frá Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri.

Aldan stéttarfélag óskar nýrri stjórn til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfi.

Tvær ályktanir voru samþykktar á þinginu, önnur um  efnahags-, kjara- og atvinnumál og hin um flugvöllinn í Vatnsmýri
 
Ályktun um efnahags- kjara- og atvinnumál
 
33. þing Alþýðusambands Norðurlands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahags-, kjara- og atvinnumála í landinu.
 
33. þing Alþýðusambands Norðurlands hvetur aðila vinnumarkaðarins til að hraða vinnu við endurnýjun kjarasamninga.

Vegna mikillar óvissu í efnahagsstjórnun landsins telur þingið óráðlegt að semja til lengri tíma en 6 til 12 mánaða.
 
Í slíkum samningi þarf fyrst og fremst að leggja áherslu á aukinn kaupmátt, sem næðist með hækkun launa og persónuafsláttar sem kæmi öllum launamönnum til góða.
Jafnframt þarf að hefja vinnu við lengri samning sem tekur við af skammtímasamningi.
 
 
Sérstök hækkun lægstu launa er krafa sem gildir bæði fyrir stuttan og langan samning.
Jafnframt er nauðsynlegt að horfa til útflutningsgreina og ferðaþjónustu um sérstaka leiðréttingu.
 
33. þing Alþýðusambands Norðurlands telur að eitt stærsta kjaramálið sé að allir hafi aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði, enda ríkir ófremdarástand í húsnæðismálum.
Samstarf þarf að vera á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins um húsnæðis- og leigukerfi á félagslegum grunni.  Einn stærsti útgjaldaliður heimilanna er húsnæðiskostnaður og skiptir miklu fyrir lífskjör landsmanna að hann lækki.
 
33. þing Alþýðusambands Norðurlands fagnar því að uppbygging á Bakka er í sjónmáli.
Einnig fagnar þingið að gerð Vaðlaheiðaganga er hafin. Miklir möguleikar eru í atvinnulífi á Norðurlandi og er það hlutverk allra, sveitarstjórna, atvinnurekenda og almennra launþega að virkja öll þau fjölmörgu tækifæri sem við eigum.
 
33. þing Alþýðusambands Norðurlands átelur harðlega það sem fram kemur í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar um greiðslu fyrir sjúkrahúsdvöl, stöðugan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu og aðrar þær fjölmörgu skerðingar sem koma harðast niður á landsbyggðinni.
 
 
 
Ályktun um flugvöllinn í Vatnsmýrinni
 
33. þing Alþýðusambands Norðurlands skorar á Alþingi og Reykjavíkurborg að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar.

Flugvöllurinn skiptir mjög miklu máli í sambandi við öryggi íbúa landsins sem þurfa á bráðri hjálp að halda vegna veikinda eða slysa sem verða fjarri Reykjavík.

Með vellinum geta starfsmenn fyrirtækja og stofnanna á landsbyggðinni sem þurfa að sækja þjónustu stjórnsýslunnar, sem nánast öll er staðsett í Reykjavík, gert það með mun lægri tilkostnaði en ef hann væri staðsettur annars staðar. Núverandi staðsetning flugvallarins styrkir þannig öflugri
byggð utan Reykjavíkur sem er hagur allra landsmanna.
 
Ljóst er að flugvöllurinn gegnir veigamiklu hlutverki í
samgöngumálum þjóðarinnar og má benda á að í gegnum tíðina hefur verið byggð upp opinber þjónusta á höfuðborgarsvæðinu fyrir almannafé, ekki síst af landsbyggðinni og því gerir 33. þing Alþýðusambands Norðurlands þá kröfu að íbúum landsbyggðarinnar verði áfram veitt aðgengi að þeirri þjónustu í gegnum flugvöllinn í Vatnsmýrinni.

Á meðfylgjandi myndum má sjá fulltrúa Öldunnar við fundarstörf en það voru þau Ágúst Marinósson stjórnarmaður, Þórarinn Sverrisson formaður Öldunnar, Hrefna Gerður Björnsdóttir starfsmaður skrifstofu, Hjördís Gunnarsdóttir varaformaður Öldunnar og fráfarandi formaður AN, Jón Garðarsson trúnaðarmaður og Helga Daníelsdóttir stjórnar- og trúnaðarmaður.

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is