Kjarasamningur við Landsamband smábátasjómanna og Samtök smærri útgerða, var undirritaður 13. nóvember sl.
Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst kl 12:00 í dag, þann 19. nóvember , og stendur hún til kl. 16:00 þann 30. nóvember nk.
Þeir sjómenn (launamenn) á smábátum að 15 metrum, sem greiða stéttarfélagsgjöld til félaga innan Sjómannasambands Íslands geta greitt atkvæði um samninginn. Sjómenn sem eiga sinn bát, eða eru eigendur og stjórnendur hlutafélags sem á bátinn, hafa ekki atkvæðisrétt í þessum kosningum.
Að atkvæðagreiðslunni lokinni þann 30. nóvember verða greidd atkvæði um samninginn, innan félaga Sjómannasambandsins, talin sameiginlega.
Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að taka þátt í kosningunni

