Vakin er athygli á því að samkvæmt kjarasamningi SGS og SA vegna starfa í greiðasölu á starfsfólk sem vinnur vaktavinnu rétt á launuðum vetrarfrídögum . Samningurinn nær meðal annars til starfsfólks á veitinga-, gisti-, þjónustu- og á greiðasölustöðum.
Samkvæmt kjarasamningnum vinnur vaktavinnufólk sér inn allt að 12 vetrarfrídaga miðað við ársstarf vegna helgi- og tyllidaga sem falla á mánudaga til föstudaga.
Vetrarfrídagar skulu veittir á tímabilinu 1. október til 1. maí og skal atvinnurekandi tilkynna töku þeirra með að minnsta kosti mánaðar fyrirvara. Meginreglan er að starfsfólk taki launað vetrarfrí, en með samkomulagi starfsmanns og atvinnurekanda má greiða dagana út í stað frítöku. Greiðslan miðast við átta dagvinnustundir fyrir hvern dag miðað við fullt starf, en hlutastarfsfólk fær greitt í samræmi við starfshlutfall. Áunnið vetrarfrí afleysingafólks skal gert upp við starfslok.
Sjá hér nánar 3.kafla samningsins sem varðar vaktavinnu, þar sem kafli 3.4. fjallar sérstaklega um vetrarfrí vegna vinnu á helgidögum.
