Skip to main content
Aldan

Ný skýrsla Vörðu sýnir ólíka stöðu launafólks til að mæta breytingum á vinnumarkaði vegna áhrifa tækni- og loftslagsbreytinga

By febrúar 5, 2026No Comments

Miklum breytingum á vinnumarkaði er spáð á næstu árum – m.a. með tilkomu gervigreindar. Spár gera ráð fyrir að tæknitengdum störfum muni fjölga en hefðbundnum skrifstofu- og þjónustustörfum muni fækka.

Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar á hagkerfum og samfélögum þurfi að taka mið af því að þær séu réttlátar. Markmiðið með réttlátum umskiptum er að tryggja að breytingar leggist ekki þyngra á ákveðna hópa en aðra.

Tæplega fjórðungur launafólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB telur að starf sitt hafi breyst eða muni breytast vegna nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga (23%). Áhrif breytinganna voru könnuð meðal þeirra sem eru í störfum sem hafa tekið breytingum eða munu líklega taka breytingum og sýna niðurstöðurnar að þær breytingar leggjast misþungt á hópa.

Áhyggjur af starfsöryggi mestar meðal innflytjenda og fólks í tekjulægstu hópunum

Þriðjungur þeirra sem eru í störfum sem hafa tekið breytingum eða eru líkleg til að taka breytingum hefur áhyggjur af starfsöryggi sínu vegna slíkra breytinga (36%). Innflytjendur og fólk með lægri atvinnutekjur eru umtalsvert líklegri en aðrir hópar til að hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu vegna breytinganna. Sömuleiðis telur lægra hlutfall í tekjulægri hópum og meðal innflytjenda að þeir gætu sinnt núverandi starfi eða öðru starfi á sama vinnustað með endurmenntun eða aukinni færni.

Meira en fjórir af hverjum tíu telja að álag í starfi hafi aukist í kjölfar nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga

Stór hluti þeirra sem eru í störfum, sem hafa breyst eða eru líkleg til að breytast vegna tækni eða loftslagsbreytinga, er mjög eða frekar sammála því að álag í starfi hafi aukist í kjölfar breytinganna (44%). Hlutfallið er þó talsvert hærra meðal innflytjenda en innfæddra (56% á móti 39%), í tekjulægri hópum og ákveðnum starfsgreinum s.s. í matvælaframleiðslu (56%), menningu- og skapandi greinum (51%) og í leikskólum (50%).

63% telja að tæknibreytingar muni auðvelda þeim starf sitt

Meirihluti launafólks, sem hefur fundið fyrir áhrifum tækni- eða loftslagsbreytinga á starf sitt eða telur að störf sín verði fyrir áhrifum þeirra, telur að breytingarnar muni auðvelda þeim starf þeirra (63%). Fólk með hærri atvinutekjur er líklega til að telja að tæknibreytingar muni auðvelda þeim starf þeirra en tekjulægra fólk. Fólk sem starfar í leikskólum og ræstingum er ólíklegra til að telja að tæknibreytingar muni auðvelda starf þeirra.

Helmingur fær viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni eða breytingar eru innleiddar

Þau sem töldu að breytingar vegna loftslags- eða tæknimála hefðu haft áhrif á starf þeirra eða myndu hafa áhrif á næstu árum voru spurð hvort þau hefðu fengið viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni eða breytingar voru innleiddar á vinnustaðnum. Rúmur helmingur var mjög eða frekar sammála (55%).

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Í könnun Vörðu var spurt hvort starf svarenda hafði breyst eða væri líklegt til að breytast vegna nýrrar tækni eða breytinga tengdum loftslagsmálum. Þau sem töldu svo vera voru spurð um áhrif þeirra breytinga á störf þeirra. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttarfélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust.

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is