Minnum á aðalfund Öldunnar stéttarfélags sem haldinn verður á morgun, miðvikudaginn 13.mars kl. 18:00. Fundurinn verður haldinn í sal frímúrara í Borgarmýri 1a.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Fundarsetning
- Kosning fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2023
- Reikningar ársins 2023
- Stjórnarkjöri lýst
- Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara
- Kosning til annarra stjórna, nefnda og ráða
- Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
- Ákvörðun félagsgjalda
- Framlag í vinnudeilusjóð
- Kosning endurskoðanda félagsins
- Kosning fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
- Önnur mál
Reikningar ársins 2023 liggja frammi á skrifstofu félagsins.