Skip to main content
Aldan

Nýjir kauptaxtar SGS vegna starfa á almennum vinnumarkaði

By desember 19, 2022No Comments

Nýir kauptaxtar fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum eftir nýsamþykktum kjarasamningi SGS og SA eru komnir og má nálgast þá hér. Kauptaxtarnir gilda frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024.

Samkvæmt töxtunum hækka kauptaxtar um að lágmarki 35.000 kr. skv. nýrri launatöflu, en lagfæringar á launatöflunni gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mánuði. Mánaðarlaun (laun þeirra sem ekki eru á kauptöxtum) hækka um 33.000 kr., kjaratengdir liðir samningsins hækka um 5,0% og bónusar og akkorð í fiskvinnslu hækka um 8%. Þá verður full desemberuppbót 103.000 kr. á árinu 2023 og orlofsuppbót verður 56.000 kr. miðað við fullt starf. Þá ber að geta að hagvaxtaraukinn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóvember 2022.

Kauptaxtar SGS og SA  – 1. nóv 2022 – 31. jan 2024

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is