Kosning um kjarasamning vegna starfa á almennum markaði hefst á hádegi í dag. Kosningin er rafræn og nota þarf rafræn skilríki eða Íslykil til að kjósa, en kosning fer fram hér á heimasíðu Öldunnar.
Hér má nálgast allt kynningarefni um samninginn á íslensku og á ensku og pólsku hér.
Skorað er á félagsmenn Öldunnar að greiða atkvæði um samninginn.
Verði hann samþykktur gildir hann afturvirkt frá 1. nóvember sl. og koma þá umsamdar launahækkanir strax til framkvæmda. Ef samningurinn verður ekki samþykktur hefjast viðræður aftur við Samtök atvinnulífsins.