Skip to main content
Aldan

Skila auðu í fjárlögum

By október 19, 2022No Comments

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir í nýrri umsögn um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ekki verði betur séð en stjórnvöld hafi ákveðið að skila auðu í að bæta afkomu heimila”. Stefnumörkun sem ASÍ hafi varað við í fyrri umsögnum birtist í fjárlagafrumvarpinu og áherslur stjórnvalda séu ekki fallnar til að stuðla að sátt á vinnumarkaði.  

Í umsögninni er rifjað upp að ASÍ hafi í umsögn um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar varað við því að farin yrði leið niðurskurðar og aukinna álaga á heimili. Sú leið myndi ekki leggja grunn að stöðugleika á vinnumarkaði. Sú stefnumörkun sem ASÍ hafi varaði við birtist nú í frumvarpi til fjárlaga.Tekjuöflun felist einkum í hækkun gjalda (krónutölugjöld og nefskattar) og aukinni skattlagningu á ökutæki og notkun bifreiða. Á útgjaldahlið sé fjárfestingum frestað, aðhald aukið og framlög lækkuð að raunvirði til mikilvægra málaflokka. 

Í umsögninni er bent á að ekki sé að finna í fjármálafrumvarpinu þær umbætur sem nauðsynlegar séu á sviði velferðar- og húsnæðismála. Áherslan sé á að auka byrðar launafólks. Þá kemur fram að þörf á aukinni gjaldheimtu gagnvart almenningi skýrist að hluta af lækkun bankaskatts og hækkun frítekjumarks fjármagnstekna. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi fyrst og fremst þjónað sérhagsmunum fjármagnsins og hinna tekjuháu í samfélaginu.  

Í umsögninni er lýst áhyggjum af vaxtahækkunum Seðlabanka Íslands sem hafi veruleg áhrif á afkomu heimila. Fjárhæðir vaxtabótakerfisins hafi ekki haldið í við þróun launa og eignaverðs. 

Þá telur Alþýðusambandið gagnrýnivert að bætur atvinnuleysistrygginga hafi ekki verið hækkaðar til jafns við þróun bóta almannatrygginga. 

Umsögn ASÍ um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar má nálgast hér.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is