Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðs sem var stofnuð af ASÍ og BSRB árið 2020. Svörin eru órekjanleg og könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, heilsu og áhrifa heimsfaraldursins. Niðurstöður hennar munu hjálpa til við að greina stöðu launafólks á Íslandi.
- Könnunin verður opin til 8.desember og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða í tölvu.
- Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
- Þrír þátttakendur vinna 30.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna
Taka þátt í könnun
Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.