Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða bæði starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.
Full desemberuppbót árið 2021 ( miðað við 100% vinnu)
96.000 kr. hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði. – greiðist eigi síðar en 15.desember.
96.000 kr. hjá þeim sem vinna hjá ríki – greiðist 1.desember.
121.700 kr. hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum – greiðist 1.desember.