Frestur til að greiða úthlutaðar vikur í orlofshúsi í sumar rennur út í dag!
Þeir félagsmenn sem eiga eftir að staðfesta eru því hvattir til að greiða leiguverðið sem allra fyrst svo þeir missi ekki vikuna sína.
Ógreiddar vikur fara í endurúthlutun að þessum degi liðnum.
Hægt er að koma á skrifstofuna og ganga frá leigusamningi eða leggja inn á reikning Öldunnar:
kt. 560169-1169
0161-26-6900
Vinsamlega sendið þá staðfestingu á greiðslu á netfangið skrifstofa@stettarfelag.is
Allar frekari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins í síma 453 5433.