Húsið er 60 fm að stærð og skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Að auki eru 4 dýnur á svefnlofti. Þvottavél og gasgrill eru í húsinu og heitur pottur á verönd.
Dvalargestir þurfa að hafa með sér handklæði og lín utan um sængurfatnað.
Orlofshúsið er staðsett í orlofshúsahverfinu fyrir neðan Varmahlíð eða rétt rúma 20 km frá Sauðárkróki. Í Varmahlíð er verslun og sundlaug með góðri aðstöðu fyrir börn og þaðan er stutt í allar áttir og fjöldinn allur af fallegum stöðum til að heimsækja.
Athugið!
- Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
- Lóð hússins er ekki ætluð fyrir tjöld, tjaldvagna, eða felli- og hjólhýsi !