Aðalfundur Deildar starfsmanna ríkis og sveitarfélaga Öldunnar stéttarfélags verður haldinn
kl. 17:00 þann 25. janúar 2023 í Borgarmýri 1, frímúrarasal.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Kröfugerðir fyrir komandi kjarasamningagerð vegna:
– kjarasamninga við ríkið sem renna út 31. mars næstkomandi.
– kjarasamninga við sveitarfélögin sem renna út 30. september 2023.
Félagsmenn Öldunnar sem starfa hjá ríki eða sveitarfélagi eru hvattir til að mæta á fundinn og láta til sín taka.