Skip to main content

Sérstakur kjarasamningur milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins gildir um störf í ferðaþjónustu, þ.e. um veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaði, afþreyingarfyrirtæki og hliðstæða starfsemi. Í samningnum er að finna ákvæði um t.a.m. kaup, orlof, vinnutíma og síðast en ekki síst vaktavinnu, en mjög algengt er að starfsfólk í ferðaþjónustu sé ráðið skv. vaktavinnufyrirkomulagi.

Nú þegar ferðaþjónustan er í miklum blóma hér á landi fer starfsfólki innan greinarinnar eðlilega ört fjölgandi. Sérstakur kjarasamningur milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins gildir um störf í ferðaþjónustunni, þ.e. um veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaði, afþreyingarfyrirtæki og hliðstæða starfsemi. Í honum er að finna ákvæði um t.a.m. kaup, orlof, vinnutíma og síðast en ekki síst vaktavinnu, en mjög algengt er að starfsfólk í ferðaþjónustu sé ráðið skv. vaktavinnufyrirkomulagi. Þegar starfsfólk er ráðið samkvæmt vaktavinnufyrirkomulagi þarf að sjálfsögðu að fylgja ákvæðum umrædds samnings. Vert er að benda á þau helstu:
• Sé starfsmaður ráðinn til vaktavinnu, skal það koma fram í ráðningarsamningi hans.
• Þegar unnið er á skipulögðum vöktum í ferðaþjónustunni þarf að tilgreina upphaf vaktar t.d. kl. 15:00 og  hvenær henni lýkur. t.d. kl. 23:00. Hafi vaktin ekki tilgreindan endatíma er hún ekki fyrirfram skipulögð.
• Þurfi að lengja skipulagða vakt vegna t.d. tilfallandi verkefna, þarf að greiða sérstaklega fyrir lenginguna. Það getur verið yfirvinna á yfirvinnutíma eða dagvinna á dagvinnutíma.
 Dæmi: Starfsmaður átti að ljúka vakt kl. 15:00 en er beðinn að vera til kl. 16:00. Þá er greiddur auka dagvinnutími, hafi starfsmaður ekki fyllt vinnuskylduna (173.33 unnar stundir á mánuði/40 stundir á viku).
• Ef atvinnurekandi getur ekki skipulagt vaktir þarf að greiða eftir klukkunni – dagvinnu á dagvinnutíma og yfirvinnu á yfirvinnutíma.
• Þeir sem verða 16 og 17 ára á árinu eiga strax að fá greitt miðað við 16 og 17 ára taxta, en hjá 18 og eldri er miðað við afmælisdaginn. 22 ára lífaldur jafngildir eins árs starfsaldri.
• Vaktir skulu skipulagðar fyrir 4 vikur í senn og vaktaskrá kynnt að minnsta kosti viku áður en hún á að taka gildi.
• Vaktaskrá skal hanga uppi þar sem starfsfólk á greiðan aðgang að henni.
• Þegar skipulögð vakt lengist vegna ófyrirséðra atvika, skal greiða það sem er umfram skráða vakt með dagvinnu- eða yfirvinnutaxta eftir því sem við á.
• Óheimilt er að greiða vaktaálag ef ekki er unnið eftir fyrirfram skipulögðum vöktum, þá skal greiða dagvinnu á dagvinnutíma og yfirvinnu á yfirvinnutíma.
• Ekki má greiða lægri launaflokk í vaktavinnu en launaflokk 5. Í tímavinnu má greiða samkvæmt launaflokki 2.
• Í vaktavinnu greiðist álag á þann hluta 40 stunda vinnuviku sem fellur utan dagvinnutímabils:
◦33% álag á tímabilinu kl. 17:00 – 00:00 mánudag til föstudaga.
◦45% álag á tímabilinu kl. 00:00 – 08:00 alla daga svo og laugardaga og sunnudaga.
◦90% álag á stórhátíðardögum og vetrarfrí í samræmi við skil á dagvinnuskyldu.

•  Fyrir vinnu umfram 40 stundir (38 stundir sé daglegur vinnutími á tímabilinu kl. 17:00 til 08:00) að meðaltali í vaktavinnu á viku skal greiða yfirvinnukaup.
•  Starfsmaður skal fá greitt fyrir skipulagða vakt til enda, þó honum sé boðið að fara heim vegna verkefnaskorts.
•  Neysluhlé í vaktavinnu skulu vera sem svarar 5 mín. fyrir hvern unninn klukkutíma og skiptast eftir samkomulagi starfsmanna og stjórnanda.
•  Ef ekki er unnið á skipulögðum vöktum, skal greiða dagvinnu á dagvinnutíma og yfirvinnu á yfirvinnutíma.
•  Óheimilt er að hafa orlof innifalið í launataxta.
•  Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum.
•  Að lágmarki skal borga 4 klst. í útkalli.

Við hvetjum félagsmenn til skoða vel og geyma alla launaseðla, sem og skrifa niður vinnutíma ef aðgangur að vaktatöflu er ekki fyrir hendi. Minnum einnig á KLUKK appið sem nýtist vel til að halda utan um tímaskráningar.
Félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við stéttarfélagið ef þeir telja að á sér sé brotið.

Kjarasamning SGS og SA vegna starfa í ferðaþjónustu má finna hér.

Kauptaxta SGS og SA vegna starfa á almennum markaði (þ.á.m. ferðaþjónustu) má finna hér.

 

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is