Skip to main content

Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað álagningu fasteignagjalda og útsvars fyrir árið 2016 hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Útsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2015 hjá 14 sveitarfélögum af 15 en Reykjanesbær er með 3,62% álag á útsvarið. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkar útsvarið á milli ára.

Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað álagningu fasteignagjalda og útsvars fyrir árið 2016 hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Útsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2015 hjá 14 sveitarfélögum af 15 en Reykjanesbær er með 3,62% álag á útsvarið. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkar útsvarið á milli ára.

Til þess að átta sig á því hvernig fasteignagjöld breytast á milli ára er farin sú leið að skoða breytingar á álagningarhlutfalli sveitarfélaga samhliða breytingum á fasteigna- og lóðamati á ákveðnu hverfi viðkomandi sveitarfélags. Fasteignagjöld hafa hækkað milli ára í flestum tilvikum en ástæðan er hækkun á fasteignamati fremur en hækkuð álagningarprósenta sveitarfélaganna. Fasteignagjöld samanstanda af fasteignasköttum, fráveitugjaldi, vatnsgjaldi, lóðaleigu og sorphirðugjöldum. Gjöldin eru í flestum tilfellum innheimt sem hlutfall af fasteigna- eða lóðamati en geta einnig  verið innheimt með blöndu af föstu gjaldi og fermetragjaldi. Sorphirðugjöld eru þó ávallt innheimt sem fast gjald eða gjald á tunnu.
Í flestum tilfellum haldast álagningaprósentur óbreyttar en fasteigna- og lóðamat tekur víðast hvar breytingum. Raunbreyting á gjöldum er því í flestum tilfellum sökum breytinga á fasteigna- og lóðamati. Vegna ólíks fasteignamats er litið á fleiri en eitt hverfi í stærri sveitarfélögum til að fá betri mynd af raunbreytingunni. Meðal annars kemur í ljós að gjöld hækkuðu í Reykjavík vegna hækkunar á fasteignamati og að lækkun á álagningu fasteignaskatts lækkar fasteignaskatt í Vestmannaeyjum.
 
Útsvar
Öll sveitarfélögin sem skoðuð voru nema eitt eru með sömu útsvarsprósentu og 2015. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkaði útsvarið, nam hækkunin 2,7% á milli ára eða úr 13,98% í 14,36%. Hjá Reykjanesbæ er 3,62% auka álag lagt á vegna slæmrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Aðeins Kópavogur, Garðabær, Seltjarnarnes og Vestmannaeyjabær innheimta útsvar undir hámarkinu sem er 14,52%. Lægsta útsvarið er 13,7% hjá Garðabæ og Seltjarnarneskaupstað.

Fasteignaskattur
Álagningarprósenta fasteignaskatts er óbreytt hjá 10 sveitarfélögum af 15. Tvö þeirra hækka fasteignaskattinn en þrjú lækka. Hækkunin í Hafnarfirði er 21,4% og Fjarðarbyggð 4,2%. Þau sveitarfélög sem lækkuðu álagninguna á milli ára eru Vestmannaeyjar um 16,7%, Garðabær um 2,1% og Kópavogur um 1,9%.
Þegar tillit hefur verið tekið til breytinga á fasteignamati, hækkar fasteignaskattur í flestum sveitarfélögum, þrátt fyrir að nokkur þeirra lækki álagningarprósentuna. Mesta hækkunin er hjá Hafnarfirði í fjölbýli um 34,5% og í sérbýli um 29,8%, einnig er mikil hækkun í Reykjavík – miðbær í fjölbýli um 14,9% og í sérbýli um 20,1%. En í Vestmannaeyjum lækkar fasteignaskatturinn um í fjölbýli um 15,4% og í sérbýli um 11,5% vegna lækkunar á álagningarprósentu. Einnig er lækkun hjá Ísafjarðabæ – eldri byggð í fjölbýli um 2,7% vegna lækkunar á fasteignamati.

Fráveitugjald
Líkt og fasteignaskattur er fráveitugjald í flestum tilfellum greitt sem hlutfall af fasteignamati ef frá eru talin Reykjavík, Akranes og Akureyri þar sem holræsagjald miðast við fastagjald og fermetragjald. Álagningarprósentan hélst óbreytt hjá 11 sveitarfélögum af 15. Er hækkun á gjaldskránni mest 5,9% í Reykjavík og Akraneskaupstað og um 4,1% hjá Akureyri. Eina sveitarfélagið sem lækkar fráveitugjaldið á milli ára er Hafnarfjarðarbær en þar lækkar gjaldið um 15,45%.
Þegar tekið er tillit til þróunar á fasteignamati hækkar fráveitugjaldið hjá næstum öllum sveitarfélögunum sem eru í samanburðinum. Aðeins er lækkun hjá Hafnarfjarðarkaupstað í fjölbýli og sérbýli og hjá Ísafirði – Eldri byggð fjölbýli. Þar sem álagt fráveitugjald hækkar í takt við hækkun á fasteignamati, sést að mesta hækkunin er í fjölbýli eða frá 9 til 13% hjá Reykjanesbæ, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Kópavogi. Fyrir sérbýli er mesta hækkunin hjá Reykjanesbæ um 9%.

Lóðaleiga
Lóðaleiga er innheimt sem hlutfall af lóðamati. Undantekningin er hjá Kópavogi þar sem lóðaleiga er föst krónutala á fermetra. Hlutfall lóðaleigu er óbreytt milli ára hjá öllum sveitarfélögum nema hjá Fjarðarbyggð – Reyðarfirði en þar hækkar lóðaleigan um 32%.
Þegar lóðaleigan er borin saman við breytingu á lóðamati má sjá að hækkun er hjá öllum sveitarfélögunum nema Kópavogi þar sem engin breyting er á gjöldum. Mesta hækkunin er hjá Fjarðarbyggð – Reyðarfirði 38,9% fyrir fjölbýli og 41,3% fyrir sérbýli og hjá Reykjavík – miðbær um 15,6% fyrir fjölbýli og um 18,5% fyrir sérbýli.
 
Vatnsgjald
Vatnsgjald er innheimt hjá mörgum sveitarfélögum sem hlutfall af fasteignamati en hjá Reykjavík, Akranesi, Akureyri, Fljótdalshéraði og Vestmannaeyjum er innheimt fermetragjald og fastagjald og að auki er rúmmetragjald í Vestmannaeyjum. Töluverð breyting er á álagningarprósentu sveitarfélaganna við gjaldtöku vatnsgjalds á milli ára. Kópavogur og Hafnarfjörður hafa lækkað álagningarprósentuna á meðan að Reykjavík, Akranes, Akureyri, Fljótdalshérað og Vestmannaeyjar hafa hækkað álagninguna. Önnur sveitarfélög eru með óbreytta álagningu frá 2015.
Þegar tekið hefur verið tillit til þróunar á fasteignamati má sjá að lækkun á vatnsgjaldi var mest hjá Hafnarfjarðarkaupstað frá 20 til 24%. Mesta hækkun á vatnsgjaldi í fjölbýli var 9 til 12% í Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Reykjanesbæ.

Sorphirðugjöld
Sorphirðu- og sorptengd gjöld eru innheimt sem föst upphæð á hverja íbúð eða fjölda tunna við hús. Aðeins hjá Reykjanesbæ er sama verðlag og í fyrra. Í Kópavogi, Akureyri og Vestmannaeyjum lækkar gjaldskráin á milli ára. Önnur sveitarfélög hækka gjaldskránna á milli ára.
Hæstu gjöldin eru greidd í Vestmannaeyjum 50.552 kr. og lægstu gjöldin eru greidd í Kópavogi 22.600 kr. og er það 124% verðmunur eða 27.952 kr. Sem dæmi um miklar hækkanir á milli ára má nefna að mesta hækkunin er 31% í Reykjavík, 13% hjá Sveitarfélaginu Árborg, 8,1% í Hafnafirði og um 7% í Garðabæ.
  

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is