Skip to main content

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Hér að neðan gefur að líta upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2015  ásamt upplýsingum um rétt til desemberuppbótar skv. þeim kjarasamningum sem heyra undir SGS.

 

Samningur                                                                          Upphæð
Samningur SGS við SA (almenni markaðurinn)                78.000 kr.
Samningur SGS við sveitarfélögin                                  100.700 kr.*
Samningur SGS við ríkið                                                    78.000 kr.
Þjónustusamningur SGS og SA (veitinga- & gistihús)        78.000 kr.
Samningur SGS og Landssambands Smábátaeigenda     78.000 kr.
Samningur SGS og Bændasamtaka Íslands                      78.000 kr.
Samningur SGS og NPA miðstöðvarinnar                          73.600 kr.**

*Með fyrirvara um að samningurinn sem undirritaður var 20. nóvember sl. verði samþykktur.
 **Enn er ósamið um desemberuppbót fyrir árið 2015. Upphæðin árið 2014 var 73.600 kr.

 

Réttur til desemberuppbótar:

Samningur SGS við SA (almennur vinnumarkaður)
Starfsmaður í fullu starfi fær greidda desemberuppbót eigi síðar en 15. desember ár hvert.  Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1. desember til 30. nóvember ár hvert í stað almanaksárs. Uppbótina skal greiða öllum starfsmönnum, miðað við starfshlutfall og starfstíma, sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Ákvæði þessi eiga einnig við um samninga SGS við Landssambands Smábátaeigenda, Bændasamtök Íslands og Landsvirkjun sem og samning SGS við SA vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða og hliðstæðrar starfsemi.

Samningur SGS við sveitarfélögin
Starfsmaður í fullu starfi fær  greidda desemberuppbót (persónuuppbót) 1. desember ár hvert.  Með fullu starfi er átt við 100% starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember sama ár. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og/eða starfstíma, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1. september það ár.  Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu, en hafði þá starfað samfellt í a.m.k. 6 mánuði skal einnig fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Hlutfall skv. þessari málsgrein er reiknað sem hlutfall af fullri vinnu (100%) í 12 mánuði á almanaksárinu af síðast gildandi desemberuppbót.

Samningur SGS við ríkið
 Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda desemberuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs.

Frekari upplýsingar um desemberuppbót er að finna í viðkomandi kjarasamningum.

Verði starfsfólks þess á áskynja að greiðslum desemberuppbótar sé óbótavant er það hvatt til þess að hafa samband við skrifstofu félagsins.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is