Skip to main content

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður, í samvinnu við stéttarfélögin Ölduna og Samstöðu, leitar að ráðgjafa í 50% stöðu í Skagafirði og Húnavatnssýslum með starfsstöð á Sauðárkróki. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði.

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður, í samvinnu við stéttarfélögin Ölduna og Samstöðu, leitar að ráðgjafa í 50% stöðu í Skagafirði og Húnavatnssýslum með starfsstöð á Sauðárkróki. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði.

Helstu verkefni
• Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu
• Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum
• Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK
• Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði

Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar,     sálfræði eða sjúkraþjálfunar
• Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
• Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfni og kostnaðarvitund
• Góð þekking á vinnumarkaði og nærumhverfi
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Hlutverk VIRK er að móta, samþætta og hafa eftirlit með þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem miðar markvisst að atvinnuþátttöku einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa.  Ráðgjafar VIRK starfa hjá stéttarfélögum samkvæmt samningi við VIRK. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður.
Nánari upplýsingar er að finna á www.virk.is

Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí 2015. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda ítarlega ferilskrá á netfangið audur@virk.is
Nánari upplýsingar veita Auður Þórhallsdóttir hjá VIRK og Þórarinn Sverrisson hjá Öldunni.

                             

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is