Aldan

Ertu búin/búinn að svara kjarakönnuninni ?

By 27. ágúst, 2026ágúst 28th, 2026No Comments

Við minnum á könnun um stöðu launafólks á Íslandi en félagsmenn hafa nú fengið sendan tölvupóst með hlekk á könnunina. Ef þú hefur þegar svarað henni þá þökkum við þér fyrir þátttökuna.

Gott að vita:

  • Könnunin er á þremur tungumálum; íslensku, ensku og pólsku
  • Þrír þátttakendur vinna 40.000 kr. gjafakort
  • Könnunin er ópersónurekjanleg. Happdrætti sem þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í er á öðrum hlekk og ekki hægt að rekja saman svör í könnuninni við þátttöku í happdrættinu.

Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni. Því fleiri sem taka þátt því betur nýtast niðurstöðurnar til að berjast fyrir betri kjörum og lífsskilyrðum launafólks.