Skip to main content

Pistill forseta ASÍ

Í Bítinu á Bylgjunni var rætt við félags- og barnamálaráðherra um frumvarp til nýrra starfskjaralaga. Verkalýðshreyfingin hefur lengi beðið eftir að ráðherrann uppfylli gefin loforð um að leggja fram slíkt frumvarp og að í anda yfirlýsingar stjórnvalda með Lífskjarasamningnum sé í því ákvæði um févíti vegna launaþjófnaðar atvinnurekenda.

Í Bítinu á Bylgjunni í gær var rætt við félags- og barnamálaráðherra um frumvarp til nýrra starfskjaralaga. Verkalýðshreyfingin hefur lengi beðið eftir að ráðherrann uppfylli gefin loforð um að leggja fram slíkt frumvarp og að í anda yfirlýsingar stjórnvalda með Lífskjarasamningnum sé í því ákvæði um févíti vegna launaþjófnaðar atvinnurekenda. Þannig fái launafólk sem brotið er á bætur í sinn hlut en í því felst raunverulegur fælingarmáttur. Í viðtalinu greindi ráðherra hins vegar frá því að til stæði að fela Vinnumálastofnun sérstakt hlutverk í þessum efnum, m.a. með sektarheimildum. Slíkt kann að vera gott og gilt en kemur aldrei í stað févítis. Af hálfu verkalýðshreyfingarinnar hefur ekki komið fram ákall um að hið opinbera taki að sér eftirlit með launagreiðslum. Því eftirliti er best komið hjá stéttarfélögunum, hér eftir sem hingað til.

Miðstjórn ASÍ ályktaði í vikunni um þau félagslegu undirboð sem enn og aftur er gerð tilraun til að framkvæma í flugrekstri á Íslandi, í þetta skipti í gegnum félagið Bluebird sem hefur sagt upp flugmönnum í miðri kjaradeilu. Slík mál eru aðför að vinnumarkaðnum og skýrt brot á vinnulöggjöfinni. Í þessari deilu er einnig vert að beina kastljósinu að ábyrgð Vinnumálastofnunar að fylgjast með starfsmannaleigum sem starfandi eru hér á landi og Bluebird nýtir sér sannanlega til að sniðganga skyldur sem atvinnurekendur þurfa að bera. Fyrirtækið starfar samkvæmt íslensku flugrekstrarleyfi og á því ekki að komast hjá reglum hins íslenska vinnumarkaðar.

Miðstjórnin ályktaði líka gegn sölu hlutar almennings í Íslandsbanka og í dag komu niðurstöður könnunar sem ASÍ lét gera meðal þjóðarinnar sem staðfestir andstöðu við þetta ferli. Skýr meirihluti er andvígur sölunni en innan við fjórðungur er fylgjandi henni. Að auki er afar skýr vilji til að stofna samfélagsbanka og voru meira en sex af hverjum tíu hlynnt því.

Það er augljóst mál að stjórnvöld eru ekki í takti við þjóðarvilja í þessu máli. Enn er unnið að því að keyra málið í gegn með hraði og áður en kosið verður í haust. En það er alveg kýrskýrt að þrýstingur á söluna kemur ekki frá almenningi. Hvaðan þá er von að spurt sé?

Góða helgi,
Drífa

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is