Skip to main content

Dagana 3. og 4. des. stóð Starfsgreinasamband Íslands fyrir kjaramálaráðstefnu
um kjarasamninga sambandsins við ríki og sveitarfélög en ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá aðildarfélögum SGS. Á ráðstefnunni var mestum tíma varið í samlestur á köflum samninganna en einnig fór talsverður tími í hópavinnu.

Dagana 3. og 4. desember stóð Starfsgreinasambandið fyrir kjaramálaráðstefnu um kjarasamninga sambandsins við ríki og sveitarfélög. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá aðildarfélögum SGS og fór hún fram á Fosshotel Reykjavík. Á ráðstefnunni var mestum tíma varið í samlestur á köflum samninganna en einnig fór talsverður tími í hópavinnu. Starfsmenn SGS munu svo vinna úr niðurstöðum ráðstefnunnar á næstunni.

Starfsgreinasambandið hefur áður haldið sambærilegar ráðstefnur í þeim tilgangi að rýna í það sem betur má fara í samningunum og um leið undirbúa komandi kjarasamningsviðræður. Iðulega hefur ríkt almenn ánægja með afraksturinn, enda hefur hann nýst vel í kjarasamningaviðræðunum.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is