Skip to main content

Um miðjan maí sl. staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Suðurlands þar sem ferðaþjónustufyrirtækinu Ferðaþjónusta og sumarhús ehf. á Kirkjubæjarklaustri var gert að greiða tveimur ungverskum starfsmönnum hvorum um sig tæpar tvær milljónir króna í ógreidd laun.

Um miðjan maí sl. staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Suðurlands þar sem ferðaþjónustufyrirtækinu Ferðaþjónusta og sumarhús ehf. á Kirkjubæjarklaustri var gert að greiða tveimur ungverskum starfsmönnum hvorum um sig tæpar tvær milljónir króna í ógreidd laun.

Starfsmennirnir leituðu til Verkalýðsfélags Suðurlands og höfðaði lögmaður félagsins mál gegn fyrirtækinu Ferðaþjónusta og sumarhús ehf.  fyrir hönd starfsmannanna vegna vangoldinna launa, einkum vegna yfirvinnu. Í ráðningarsamningi milli G og F ehf. var kveðið á um tiltekið tímakaup og voru útreikningur og kröfur starfsmannanna byggðar á tímaskráningum starfsmannanna sjálfra. Fyrirtækið hélt því fram að skráningin væri röng og vinnuframlag starfsmannanna samkvæmt henni ósannað. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var af Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að tímaskráningar starfsmanna væru handskráðar samtímaheimildir. Hefði fyrirtækið ekki lagt fram neina aðra tímaskráningu en því hefði verið í lófa lagið að tryggja sér sönnun um vinnuframlag starfsmanna með því að skrá vinnu starfsmanna með stimpilklukku eða yfirfara tímaskráningu þeirra jafnóðum. Yrði því að leggja tímaskráningu starfsmanna til grundvallar við úrlausn málsins enda ekki við annað að styðjast og ekkert fram komið sem rýrði trúverðugleika þeirrar skráningar. Var fyrirtækinu Ferðaþjónusta og sumarhús ehf. því gert að greiða starfsmönnunum umkrafða fjárhæð.

Málin voru rekin hvort í sínu lagi. Fólkið hóf störf hjá ferðaþjónustufyrirtækinu í febrúar árið 2015 en hætti nokkrum mánuðum seinna. Þau lýstu því hvernig þau hefðu unnið alla daga nema 17. júní þegar vinnuveitandinn gaf þeim frí.

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að þó starfsmennirnir hefðu ekki gert athugasemdir við uppgjör þegar þeir luku störfum lægi fyrir að þeir væri útlendingar og hefðu því ekki nægilega þekkingu á reglum íslensks vinnuréttar. 

Hæstiréttur staðfesti dómana og segir einnig að yfirmanni fyrirtækisins hafi verið í lófa lagið að skrá vinnu starfsfólksins með tímaklukku eða yfirfara tímaskráningu jafnóðum. Það hafi hann ekki gert. Þar af leiðandi yrði að leggja tímaskráningar fólksins til grundvallar, því ekki væri við neitt annað að styðjast.

Dómur Hæstaréttar staðfestir enn einu sinni mikilvægi þess að launafólk haldi vel utan um vinnutíma sinn og skrái hann skilmerkilega. Þetta á enn frekar við þegar um er að ræða mikla yfirvinnu og óreglulega vinnuskyldu. Alþýðusambandið bendir af þessu tilefni sérstaklega á KLUKK, tímaskráningarapp í síma sem hægt er fá á íslensku, ensku og pólsku.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is