Landsmennt er fræðslusjóður fyrir starfsfólk á almennum vinnumarkaði.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn þegar sótt er um styrk úr sjóðinum:
Frumrit af reikningi, stíluðum á félagsmann, þar sem fram kemur:
- nám/námskeiðslýsing
- nafn og
- kennitala námskeiðshaldara/skóla.
Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki.
Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.
Rafræn umsókn vegna náms/námskeiða.
Rafræn umsókn um ferða- og dvalarstyrk vegna náms/námskeiða
Application for grant for study/course
Application for travel and accommadation grants for studies/courses
Wniosek indywidualny o studia/kursy
Wniosek indywidualny o dofinansowanie kosztów podróży i zakwaterowania na studia/kursy
Félagsmenn geta sótt um styrki vegna náms og námskeiða sem þeir hafa greitt fyrir á meðan þeir greiða til félagsins.
Dæmi um styrkhæft nám/námskeið eru háskólanám, framhaldsskólanám, aukin ökuréttindi, almenn ökuréttindi, tómstundanám, tungumálanámskeið, íslenskunám fyrir útlendinga, sjálfstyrkingarnámskeið og margt fleira.
Sjá nánar um starfsreglur og skilyrði sem þarf að uppfylla þegar sótt er um styrk í sjóðinn
