Nýlega kom út stutt fræðslumynd á fimm tungumálum um helstu einkenni vinnumansals. Verkefnið var unnið á síðasta ári, í ljósi þess að slík mál gera í auknum mæli vart við sig í íslensku samfélagi og ástæða þótti til þess að gera betur grein fyrir þeim. Myndin er um þriggja mínútna löng hreyfimynd og er unnin á Íslandi, en myndskreytirinn Elías Rúni teiknaði myndirnar við handrit sem unnið var af samstarfshópi þeirra sem komu að verkinu.
Hér má nálgast fræðslumyndina, talsetta og textaða á 5 tungumálum (íslensku, ensku, pólsku, spænsku og úkraínsku).
Myndbandið er samstarfsverkefni Vörðu-Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, Félagsmálaskóla alþýðu, Jafnréttisstofu, Kvennaathvarfs, Vinnueftirlitsins, Rauða Krossins á Íslandi og Neyðarlínu – 112. Verkefnið hlaut stuðning frá Dómsmálaráðuneyti og Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.