Minnum félagsmenn á rétt þeirra á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbótin er 60.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Hér má nálgast reiknivél sem reiknar orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.
Ríki
Orlofsuppbótin er 60.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1.júní. Hér má nálgast reiknivél sem reiknar orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.
Sveitarfélög
Persónuuppbótin er 59.500 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí. Hér má nálgast reiknivél sem reiknar persónuuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.