Starfsmenn sveitarfélaga skulu hafa fengið persónuuppbót greidda 1. maí en starfsmenn hjá ríki og á almennum markaði eiga að hafa fengið orlofsuppbót sína greidda 1.júní.
Orlofsuppbót/persónuuppbót er föst tala sem kveðið er á um í kjarasamningum. Greiða þarf skatt og skyldur af orlofsuppbótinni. Orlofslaun eru þó innifalin í orlofsuppbót og greiðast því ekki til viðbótar.
- Á almenna markaðinum kr. 53.000. greiðist 1. júní.
- Hjá ríkinu kr. 53.000 greiðist 1 . júní.
- Hjá sveitarfélögum kr. 53.000 greiðist 1. maí.
* Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar.
* Hafi starfsmaður verið fjarverandi vegna veikinda skal við útreikning uppbótar telja þær vikur með sem hann fékk greiddar.
* Hafi starfsmaður unnið samfellt 12 vikna starf á orlofsárinu á hann rétt á að fá orlofsuppbót greidda við starfslok, en þá hlutfallslega miðað við starfstíma.
* Við starfslok á að gera upp áunna orlofsuppbót verði starfslok fyrir gjalddaga orlofsuppbótarinnar.